Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.2.2018
Áætlaðar lokanir miðvikudaginn 21. febrúar
Hér í viðhenginu koma fram áætlaðar lokanir vegna veðurs fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 21. febrúar.
Lokanir
Búið er að loka vegunum um Fróðárheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskulda, Hafnarfjall, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Kjalarnes, Hellisheiði, Þrengsli, Sandskeið, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði.
Opnanir
Búið er að opna veginn um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg en þar er mikið hvassviðri og vatnselgur.
Ábendingar frá veðurfræðingi kl. 18:00
Litur: AppelsínugulurNú
síðdegis eru spár óbreyttar frá í morgun. Skellur á suðvestanlands á milli kl.
7 og 10 með allt að 23-28 m/s. snjókomu og slæmu skyggni í efri byggðum og
austur frá Reykjavík. Hviður allt að 40 m/s, s.s. á Reykjanesbraut
og Grindavíkurvegi um kl. 8 og fram yfir kl. 10 á Kjalarnesi og undir
Hafnarfjalli. Í Húnaþingi og Skagafirði verður sérlega hvasst á milli kl. 10 og
13, jafn vindur allt að 30-32 m/s og víða þvert á veg. Blindhríð verður á
Vestfjörðum um og fyrir hádegi og eins á Fjarðarheiðinni fyrir
austan.
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Mikið hvassviðri og vatnselgur er á Reykjanesbraut og krapi og hvassviðri á Grindavíkurvegi. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Suðurstrandavegi.
Á Suðvestur- og Suðurlandi er krapi, hálka og hálkublettir.
Á Vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka, hálkublettir og éljagangur. Þæfingsfærð og hvassviðri er á Vatnaleið.
Á Norðurlandi er fremur lítið um hálku nema í Húnavatnssýslum. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði.
Það er víða hált eða hálkublettir á Austurlandi. Með suðausturströndinni eru hálkublettir og snjóþekja og víða éljagangur.
Ófært við Norðlingafljót
Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót
þar sem vatn flæðir yfir veg.
Þungatakmarkanir
Ásþungi
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.