Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.10.2017

21.10.2017 9:29

Færð

Það eru hálkublettir á fáeinum fjallvegum en alls staðar er greiðfært á láglendi. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Bröttubrekku, Vatnaleið og Fróðárheiði, á Vestfjörðum á Hálfdáni, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði, og á Norðausturlandi eru hálkublettir á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Fjarðarheiðin er orðin auð.

Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Borgarfjarðarbrú

Nú er unnið að lokaáfanga gólfviðgerðar á Borgarfjarðarbrú. Umferð er stýrt með ljósum. Verkinu á að ljúka 14. nóvember.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru nú flestir orðnir ófærir og allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.