Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.9.2018

20.9.2018 15:08

Ábendingar frá veðurfræðingi 20. september kl. 11:00

Litur: Gulur

Kemur til með að snjóa meira og minna í dag og til morguns á Norður- og Norðausturlandi. Einkum á fjallvegum, en það er heldur kólnandi og þar með lækkandi frostmarkshæð. Krap og snjór einnig á láglendi á utanverðum Tröllaskaga.  

Færð

Hálka og éljagangur er á Þverárfjalli. Hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum. Hálkublettir eru á Bröttubrekku eins eru hálkublettir á Vatnsskarði. Krapi er á Hólasandi og Mývatnsöræfum. Hálkublettir og éljagangur eru á Siglufjarðarvegi frá Ketilás í Dalvík.

Framkvæmdir

Fimmtudaginn 20. september er stefnt að því að malbika axlir á Reykjanesbraut, milli Straumsvíkur og Hvassahrauns. Þrengt verður að umferð og umferðarhraði tekinn niður framhjá vinnusvæðinu. Búast má við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 til kl. 22:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Hálendi

Búast má við að færð gæti farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu landinu.

Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur vegna viðhalds

Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranótt föstudags vegna viðhalds og hreingerningar frá miðnætti til kl 06:00 að morgni


Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.