Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.9.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi 20. september kl. 11:00
Kemur til með að snjóa meira og minna í dag og til morguns á Norður- og Norðausturlandi. Einkum á fjallvegum, en það er heldur kólnandi og þar með lækkandi frostmarkshæð. Krap og snjór einnig á láglendi á utanverðum Tröllaskaga.
Færð
Hálka og éljagangur er á Þverárfjalli en hálka á Möðrudalsöræfum. Hálkublettir eru á flestum fjallvegum á Vestfjörðum. Hálkublettir eru á Bröttubrekku eins eru hálkublettir á Vatnsskarði. Krapi er á Hólasandi og Mývatnsöræfum, krapi og éljagangur er á Víkurskarði. Hálkublettir og éljagangur eru á Siglufjarðarvegi frá Ketilás í Dalvík.
Framkvæmdir
Fimmtudaginn 20. september er stefnt að því að malbika axlir á Reykjanesbraut, milli Straumsvíkur og Hvassahrauns. Þrengt verður að umferð og umferðarhraði tekinn niður framhjá vinnusvæðinu. Búast má við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 til kl. 22:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.Hálendi
Búast má við að færð gæti
farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu
landinu. Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur vegna viðhalds
Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranótt föstudags vegna viðhalds og hreingerningar frá miðnætti til kl 06:00 að morgni
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.