Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.2.2018
Sæbraut er lokuð
Sæbraut er lokuð til suðurs við Miklubraut vegna umferðaróhapps.Færð og aðstæður
Á Suður- og Suðvesturlandi eru víðast hvar hálkublettir og éljagangur. Snjóþekja og éljagangur er á Hellisheiði og Lyngdalsheiði en flughált í Grafningi.
Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Vestfjörðum en Snjóþekja er á Kleifaheiði, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði. Þæfingsfærð er á Hálfdán en flughált er á Örlygshafnarvegi og yfir Bjarnarfjarðarháls.
Á Norðurlandi er víða éljagangur en fremur lítið um hálku nema í Húnavatnssýslum. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði.
Það er víða hált eða hálkublettir á Austurlandi. Með suðausturströndinni er hringvegurinn auður suður að Lómagnúp en hálka og hálkublettir þar vestar.
Ófært við Norðlingafljót
Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót
þar sem vatn flæðir yfir veg.
Þungatakmarkanir
Ásþungi
Þriðjudaginn 20. febrúar Kl 10:00 verður viðauki 1 felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.