Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.2.2018

20.2.2018 6:41

Færð og aðstæður

Á Suður- og Suðvesturlandi eru víðast hvar hálkublettir og éljagangur. Þó er flughált í Grafningi og á Bláfjallavegi. Snjóþekja og éljagangur er á Reykjanesbraut og á Hellisheiði.

Á Vesturlandi er víðast hvar hálka, hálkublettir eða snjóþekja.

Hálka er á flestum vegum á Vestfjörðum en sums staðar eru aðeins hálkublettir. Flughált er á Örlygshafnarvegi og yfir Bjarnarfjarðarháls. 

Á Norðurlandi er víða hálkublettir en annars er fremur lítil hálka á aðalleiðum en ívið meiri hálka á útvegum.

Það er víða hált eða hálkublettir á Austurlandi. Með suðausturströndinni er hringvegurinn auður.

Ófært við Norðlingafljót

Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót þar sem vatn flæðir yfir veg.

Þungatakmarkanir

Ásþungi

Þriðjudaginn 20. febrúar Kl 10:00 verður viðauki 1 felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.