Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.2.2018
Færð og aðstæður
Það hefur mikið tekið upp á Suður- og Suðvesturlandi og vegir víðast hvar ýmist auðir eða aðeins í hálkublettum. Þó er flughált í Grafningi, á Bláfjallavegi og Kjósarskarðsvegi.
Hálka er á flestum vegum á Vestfjörðum en sums staðar eru aðeins hálkublettir.
Á Norðurlandi er fremur lítil hálka á aðalleiðum en ívið meiri hálka á útvegum.
Það er víða hált á Austurlandi, raunar flughált á köflum. Með suðausturströndinni er mikið til autt.
Ófært við Norðlingafljót
Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót
þar sem vatn flæðir yfir veg.
Þungatakmarkanir
Ásþungi
Þriðjudaginn 20. febrúar Kl 10:00 verður viðauki 1 felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.