Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.2.2018
Færð og aðstæður
Það hefur mikið tekið upp á Suður- og Suðvesturlandi og vegir víðast hvar ýmist auðir eða aðeins í hálkublettum. Þó er flughált í Grafningi, á Kjósarskarði og Krýsuvíkurvegi.
Krapi eða hálka er á flestum vegum á Vestfjörðum en flughált er á Hjallahálsi og eins á Innstrandavegi.
Á Norðurlandi er fremur lítil hálka á aðalleiðum en ívið meiri hálka á útvegum.
Það er víðast hvar hált á Austurlandi, raunar flughált allvíða og sums staðar er hvasst. Varað er við óveðri á Vatnsskarði eystra. Með suðausturströndinni er mikið autt.
Ófært við Norðlingafljót
Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót þar sem vatn flæðir yfir veg.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.