Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.9.2018

18.9.2018 17:27

Framkvæmdir

Miðvikudaginn 19. september er stefnt að því að malbika axlir á Reykjanesbraut, milli Straumsvíkur og Hvassahrauns. Þrengt verður að umferð og umferðarhraði tekinn niður framhjá vinnusvæðinu. Búast má við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 til kl. 22:00.

Miðvikudaginn 19. september er stefnt að viðgerðarvinnu á Sandgerðisvegi og Strandgötu í Sandgerði. Vinnusvæðum verður lokað og umferð stýrt framhjá ef þörf er á, því má búast við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 9:00 til kl. 14:00.

Einnig er stefnt að viðgerðarvinnu á Arnarnesvegi, á milli Fífuhvammsvegar og Rjúpnavegar miðvikudaginn 19.september. Vinnusvæðum verður lokað og umferð stýrt framhjá ef þörf er á. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 14:00 til kl. 20:00.

Þriðjudaginn 18. september er stefnt að því að malbika báðar akreinar og gatnamót á Vesturlandsvegi við Borgarfjarðarbraut. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Búast má við umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08.00 og 22.00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur vegna viðhalds

Hvalfjarðargöng verða lokuð næstu þrjár nætur vegna viðhalds og hreingerningar frá miðnætti til kl 06:00 að morgni


Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.