Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.9.2018
Tafir á umferð á þjóðvegi nr. 30
Í dag laugardaginn 15. september gætu orðið smávægilegar tafir á vegi nr. 30 Skeiðavegi kl. 13:00 og eitthvað fram eftir degi.
Nánari
upplýsingar á heimasíðu http:// www. skeidgnup.is
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.