Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.6.2018
Lokun
Lokað verður vegna viðhalds í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði.Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður á nóttinni á virkum dögum, frá miðnætti til kl. 7:00. Vinnan hefst á miðnætti þann 13 júní (aðfararnótt fimmtudags).
Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með 2-3 vikum. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu
Á fimmtudagskvöld og nótt 14.-15. júní er stefnt að því að malbika akrein og öxl á Vesturlandsvegi, frá hringtorgi við
Baugshlíð að hringtorgi við Langatanga. Þrengt verður um eina akrein og búast
má við lítilsháttar umferðartöfum. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan
á framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00
til kl. 02:00.
Einnig er stefnt á að malbika ramp frá Höfðabakka niður Ártúnsbrekku. Honum verður lokað, hjáleiðir og viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 00:00 til kl. 07:00.
Fimmtudaginn 14. júní er
stefnt að því að malbika aðra akrein á Vesturlandsvegi, frá hringtorgi við
Langatanga að hringtorgi við Baugshlíð. Þrengt verður um eina akrein, búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Viðeigandi
merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00
og 19:30.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.