Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.9.2018
Malbikun
Fimmtudaginn
13. sept er stefnt á að malbika báðar akreinar Borgarbrautar frá gatnamótum Hringvegar og Borgarbrautar í norðurátt. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Viðeigandi
merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 22:00.
Vegfarendur
eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við
vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt
akstursbrautum.
Framkvæmdir
Vegna viðgerða á brúnni yfir Rauðalæk vestan við Hellu verður annarri akreininni lokað fram á hádegi í dag 13. sept.
Tafir á umferð á þjóðvegum nr.30 og 32
Tafir verða á umferð á þjóðvegi nr. 32, Þjórsárdalsvegi, vegna fjárrekstra fimmtudaginn 13. september, frá Búrfellsvirkjun og að Fossnesi frá kl. 11:00 – 21:00 en hjáleiðir þó færar að hluta.
Föstudaginn 14. september á þjóðvegi nr. 32 frá Fossnesi að Skaftholtsréttum kl. 08:00 – 13:00 en hjáleiðir eru þó færar að hluta. Þann sama dag, 14. Sept. verður Þjórsárdalsvegur nr. 32 frá Þrándarholti að Sandlækjarholti, ( Sandlækjarmýri) lokaður frá kl. 16:00 – 18:00, hjáleið aðeins fær um Landsveit!
Laugardaginn 15. september gætu orðið smávægilegar tafir á vegi nr. 30 Skeiðavegi kl. 13:00 og eitthvað fram eftir degi.
Nánari upplýsingar á heimasíðu http:// www. skeidgnup.is
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.