Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.6.2018

12.6.2018 14:44

Lokun

Lokað verður vegna viðhalds í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði.
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður á nóttinni á virkum dögum, frá miðnætti  til kl. 7:00. Vinnan hefst á miðnætti þann 13 júní (aðfaranótt fimmtudags).
Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með 2-3 vikum. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Þriðjudaginn 12. júní er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Vesturlandsvegi, frá hringtorgi við Langatanga að hringtorgi við Baugshlíð. Þrengt verður um eina akrein, búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 og 19:00.

Á þriðjudagskvöld og nótt 12.-13. júní er stefnt að því að malbika og fræsa tvær akreinar á Miklubraut, á milli gatnamóta við Sæbraut og gatnamóta við Höfðabakka. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00 til kl. 07:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Miðvikudaginn 13. júní og aðfaranótt fimmtudagsins 14. júní er stefnt að því að malbika Reykjanesbraut á 1200m kafla á mislægum gatnamót við Krýsuvíkurveg.  Slitlag  verður lagt á syðri akrein og - vegöxl á mánudagskvöld en norður akrein og – vegöxl kvöldið eftir. Umferð í átt til Reykjanesbæjar er að mestu óhindruð en umferð frá Reykjanesi mun aka hjáleið um Ásbraut í Vallarhverfi. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00 og 05:30.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.