Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.10.2017

12.10.2017 11:11

Reykjanesbraut, nýtt hringtorg við Þjóðbraut

Í dag fimmtudaginn 12. október verður unnið við malbikun á nýju hringtorgi við Þjóðbraut. Umferð verður beint um hjáleiðir framhjá vinnusvæðinu.

Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Hálendisvegir

Færð á hálendisvegum hefur spillst og hafa margir þeirra orðið ófærir. Við bendum vegfarendum á að fylgjast vel með færðarkortinu og veðurspá ef þeir ætla inn á hálendið.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.