Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.6.2018

11.6.2018 14:44

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag mánudaginn 11. júní er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Vesturlandsvegi við Leirvogstungu, frá Köldukvísl að Leirvogsá. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt framhjá. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 20:00.

Í kvöld 11. júní og aðfaranótt þriðjudagsins 12. júní er stefnt að því að malbika Reykjanesbraut á 1200m kafla á mislægum gatnamót við Krýsuvíkurveg.  Slitlag  verður lagt á syðri akrein og - vegöxl á mánudagskvöld en norður akrein og – vegöxl kvöldið eftir. Umferð í átt til Reykjanesbæjar er að mestu óhindruð en umferð frá Reykjanesi mun aka hjáleið um Ásbraut í Vallarhverfi. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00 og 05:30.

Í kvöld 11. júní og aðfaranótt þriðjudagsins 12. júní er stefnt að því að malbika ramp frá Ártúnsbrekku niður að Sæbraut. Rampinum verður lokað og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.  Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00 og  07:00.

Einnig verður fræst báðar akreinar á Kringlumýrarbraut frá gatnamótum við Borgartún að gatnamótum við Miklubraut. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Byrjað verður að þrengja um eina akrein kl. 19:00, síðan verður götunni lokað kl. 20:00, hjáleiðir og viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00 og  02:00.

Þriðjudaginn 12. júní er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Vesturlandsvegi, frá hringtorgi við Langatanga að hringtorgi við Baugshlíð. Þrengt verður um eina akrein, búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 og 19:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.