Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.6.2018
Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag mánudaginn 11. júní er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Vesturlandsvegi við Leirvogstungu, frá Köldukvísl að Leirvogsá. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt framhjá. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 20:00.
Í dag mánudag 11.júní og á morgun þriðjudag 12. júní er stefnt að því að malbika Reykjanesbraut á 1200m kafla á mislægum gatnamót við Krýsuvíkurveg. Slitlag verður lagt á syðri akrein og - vegöxl á mánudagskvöld en norður akrein og – vegöxl kvöldið eftir. Umferð í átt til Reykjanesbæjar er að mestu óhindruð en umferð frá Reykjanesi mun aka hjáleið um Ásbraut í Vallarhverfi. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00 og 05:30.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.