Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.12.2017
Ábending frá veðurfræðingi:
Það þykknar hratt upp í kvöld og hvessir sunnan- og suðvestanlands. Á Hellisheiði og Mosfellsheiði snjóar frá því um miðnætti og þar má reikna með talsverðu hríðarveðri, en lagast mikið um kl. 7 í fyrramálið. Á láglendi suðvestantil kemst hiti hins vegar upp fyrir frostmark seint í kvöld. Frá Vík og austur á Höfn mun einnig setja niður nokkurn krapa eða snjó í nótt og fyrramálið.
Færð og aðstæður
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum.Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.