Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.12.2017

10.12.2017 15:56

Krapastífla í Jökulsá á Fjöllum

Krapastífla er við brúna á Jökulsá á Fjöllum á þjóðvegi 1. Vegfarendur eru beðnir um að aka varlega þar sem flætt gæti yfir veg.

Færð og aðstæður

Gott ferðaveður er í flestum landshlutum, mikið frost og  víða stilla. Hálka, hálkublettir eða sjóþekja er á vegum og eitthvað um éljagang með ströndinni á Norðausturlandi.  Þæfingur er á Fjarðarheiði og  Öxi.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.